- 17 stk.
- 05.03.2020
Jafi er yfirleitt jafnþráða eins og einskefta. Í honum fylgjast að tveir eða fleiri þræðir í uppistöðu og ívafi þannig að tveir eða fleiri uppistöðuþræðir eru dregnir inn í sama hafald og sömu tönn og ofið með sama þráðafjölda í hverju skili. Stakir þræðir geta einnig legið milli tvöföldu þráðanna.