- 33 stk.
- 05.03.2020
Þegar bindimunstur eru teiknuð þarf stundum að gera vinnuteikningu í köflum, tveimur, þremur eða fleirum, og síðan vinna inndráttarmunstur eftir kaflamunstrinu. Í byrjun er ákveðið hve margir þræðir eru í einni rúðu í kaflamunstrinu og unnið samkvæmt því. Í hverjum kafla er bindimunstur þeirrar frumbindingar sem verið er að vinna eftir endurtekið eins oft og þörf er á, eða þar til kaflinn hefur fengið sína stærð samkvæmt kaflamunstrinu. Í raun er verið að stækka munstrið sem ofið er eftir.
Það má vefa kaflaskipt vaðmál eftir öllum tvíkaflamunstrum og ýmist eru notuð þrjú eða fjögur hafaldasköft fyrir hvern kafla.
Kaflaskipt vaðmálsbinding getur hentað vel í borðdúka, púðaborð, áklæði eða fataefni svo eitthvað sé nefnt.