- 128 stk.
- 18.03.2020
Með því að sameina ólíkar bindingar má búa til munstur sem nefnast samsettar bindingar, og til er mikill fjöldi munsturgerða þar sem ólíkar grunnbindingar eru sameinaðar. Þær má setja saman þannig að munstrin verði ýmist langröndótt, þverröndótt eða rúðótt. Þegar bindimunstur eru sameinuð verður að taka tillit til þess að uppistöðuþræðir sem bindast þétt styttast meira en þeir sem bindast gisið og þess vegna er heppilegast að sameina þær bindingar sem eru álíka þéttar. Þegar tvö eða fleiri bindimunstur eru sett saman í inndrætti myndast rendur í voðinni, langsum. Þar sem ólíkar bindingar mætast þarf að gæta að því að þræðirnir bindist gagnstætt hver öðrum til þess að kaflamótin verði sem greinilegust og fallegust.
Fyrst koma grunnbindimunstur af ýmsum samsettum bindingum og síðan koma bindimunstur í lit og heildarmyndir sem sýna hvernig hugsanlegur vefur gæti litið út.