- 38 stk.
- 05.03.2020
Það kallast fléttað vaðmál þegar skálínur í vaðmáli koma hornrétt hver á aðra og virðast fléttast saman. Fléttað vaðmál er jafnan leitt af vaðmáli með jafna band- og þráðaráferð og þráðafjöldi eins munsturs verður að ganga upp þegar deilt er með skaftafjölda frumbindingarinnar.
Þegar skálínur í vaðmáli eru ekki lengur beinar heldur bogadregnar kallast vendin bylgjað vaðmál. Bindimunstrið má teikna með því að þræða einn, tvo eða fleiri þræði í höföld á sama hafaldaskafti. Uppbindingin er ýmist á fjögur, sex, átta eða fleiri sköft og stigið beint, í odda eða eins og hugmyndaflugið leyfir.